Orsök |
Baktería (Chlamydia trachomatis) |
|
Algengi |
Langalgengasti kynsjúkdómurinn – breiðist hraðast út. |
|
Áhættuhópar |
Allir á aldrinum 14-26 ára |
|
Smitleiðir |
Klamýdíusmit berst milli manna við snertingu slímhúða, venjulega við samfarir. 60-70% líkur á smiti (sem er mikið!). |
|
Einkenni |
Einkenni koma fram 1-3 vikum eftir mök. Meira en 50% smitaðra fá þó væg eða engin einkenni. Þau geta horfið á fáeinum dögum hjá báðum kynjum og getur þá sýkingin blundað í langan tíma. Karlar: útferð (glært/gult/hvítt slím). Sviði og kláði við þvaglát. Verkur í eista. |
|
Konur: aukin útferð (hvítt/gulleitt, slím frá leggöngum). Sviði eða kláði í þvagrásinni við eða eftir þvaglát, tíð þvaglát, óreglulegar blæðingar og stundum kviðverkir. Þeir sem hafa einkenni eru líklegri smitberar. Ef ekki meðhöndluð í upphafi getur hún blossað upp síðar af mismunandi orsökum. |
||
Forvarnir |
Smokkurinn – líkur á smiti við munnmök óþekktar. |
|
Læknir |
Lætur þig pissa í glas (fyrsta bunan – PCR) – ef smit, þá er gefin 1 tafla af sýklalyfi (1g Azithromycin). Maki og hugsanlega 3. aðili einnig að fá meðhöndlun. Er mjög auðvelt að lækna ef sjúkdómurinn greinist á annað borð! |
|
Horfur |
Bólgur í eggjaleiðurum og eistum. Af 100 konum sem ganga með klamýdíu án þess að vita það fá 20 slæmar bólgur í móðurlíf. Af þessum 20 verða 4 ófrjóar, aðrar 4 fá slæma króníska verki og aðrar 2 lenda í lífshættu vegna utanlegsfósturs. Eykur líkur á HIV smiti hjá konum. |
Heimild: doktor.is