Alla dreymir, og 9 af hverjum 10 karlmönnum og álíka margar konur, sem spurð eru, svara á þá lund að þau kannast við að hafa dreymt erótíska drauma. Þeir geta verið ævintýralegir og slitróttir. Þeir geta líka verið raunverulegir, svo að minningin um atburðarás og persónur er skýr, þegar viðkomandi vaknar.
Erótískir draumar eru ekki sjaldgæfari en aðrir draumar, en þeim fylgir jafnan kynferðisleg örvun. Karlmönnum rís hold og, með eða án sjálfsfróunar, verður oft sáðlát.
Algengt er að stálpaðir piltar fái sitt fyrsta sáðlát í draumi. Þetta kallast blautir draumar. Löngum hafa fordómar einkennt viðhorf til kynlífs, einnig þótt það sé ósjálfrátt og ómeðvitað.
Um það bil helmingur 15 ára pilta hefur fengið ósjálfrátt sáðlát að nóttu til. Þetta getur gerst fram í háa elli.
Stúlkur fá eðli sínu samkvæmt ekki blauta drauma. Engu að síður dreymir þær erótíska drauma. Þeim getur fylgt fullnæging sem getur verið fylgifiskur sjálfsfróunar.
Stúlkan getur líka vaknað kynferðislega örvuð af draumi og lokið sér af sjálf. Konur, sem fá fullnægingu í svefni geta átt von átt slíku þrisvar til fjórum sinnum á ári.
Grein af doktor.is