Krabbameinsráðgjöf án þess að panta tíma
Hægt er að ganga beint inn af götunni og fá ráðgjöf reyndra hjúkrunarfræðinga sem hafa sérhæfingu í hjúkrun krabbameinssjúklinga í heimahúsum.
Velkomin beint af götunni er ný þjónusta sem Karitas býður upp á. Þú getur komið á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 11-14 án þess að panta tíma á skrifstofu Karitas, Ármúla 9 og fengið ráðgjöf reyndra hjúkrunarfræðinga sem hafa sérhæfingu í hjúkrun krabbameinssjúklinga.
Þú getur komið vegna eigin veikinda, verið aðstandandi eða vinur
Við veitum ráðgjöf um:
- Líkamleg, andleg og sálfélagsvandamál
- Erfiðleika í samskiptum
- Börn og ungmenni
- Ástvini og umönnun þeirra
- Hjálpartæki og fyrirkomulag heima
Landsbyggðarfólki eða þeim sem eiga ekki heimangengt bjóðum við upp á samskipti gegnum samskiptamiðla:
Síma • Skype • Facetime • Netpóst
Gjaldskrá | krónur |
Ráðgjöf í 30 mínútur |
3500 |
|
Ráðgjöf í 60 mínútur |
7000 |
Nánari upplýsingar eru í síma 551 5606. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á karitas@karitas.is
Smelltu HÉR til að kynna þér starfsemi Karitas.