Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins verður haldið í tuttugasta og þriðja sinn fimmtudaginn 5. júní n.k. og hefst kl. 19:00 við hús Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Skráning er hafin á www.hlaup.is
Hægt er að velja um 3 kílómetra skokk eða göngu frá Skógarhlíð að Öskjuhlíð og til baka eða 10 kílómetra hlaup suður fyrir Reykjavíkurflugvöll og til baka. Tími verður mældur hjá öllum og úrslit birt eftir aldursflokkum: 14 ára og yngri, 15-18 ára, 19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri.
Helga Camilla stöðvarstjóri hjá World Class mun sjá um að hita hlauparana upp kl. 18:40. Súpa fyrir alla að hlaupi loknu í boði Happ. Eðal Toppur og Latabæjar Brazzi í boði Vífilfells. Aliir hlauparar fá íþróttadrykkinn Hleðslu í boði Mjólkursamsölunnar.
Forskráning er á hlaup.is til hádegis 5. júní. Skráning er hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð 8 til kl. 18:00 þann dag. Þátttökugjald er 500 krónur fyrir 14 ára og yngri en 1.500 krónur fyrir 15 ára og eldri. Allir sem ljúka hlaupinu fá viðurkenningarpening. Verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki í báðum vegalengdunum. Auk þess er fjöldi veglegra útdráttarverðlauna.
Styrktaraðilar hlaupsins eru:
Sportís sem gefur Asics hlaupajakka
Optical Studio sem gefur Ray Ban sólgleraugu
World Class sem gefur 3 gjafabréf í dekur og líkamsrækt
Regalo sem gefur Tigi hárvörur og Marocconoil vörur
Margt Smátt sem gefur hlaupavesti og töskur
Subway sem gefur 6 gjafabréf
Ginger sem gefur 10 gjafabréf
Leikhópurinn Lotta gefur 2 x gjafabréf á Hróa Hött (fyrir 4) og geisladiska
Sölufélag garðyrkjumanna sem gefur 6 gjafakörfur
Beiersdorf sem gefur 10 Eucerin gjafaöskjur
Hreysti sem gefur 3 armbeygju líkamsræktartæki
Salka bókaútgáfa gefur bókapakka
Nesdekk gefur 2 gjafabréf með 10.000 kr. inneign