Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI Friðsæld í febrúar er ætlað að verða árlegur viðburður þar sem athygli er beint að hugleiðslu og þeim ávinningi sem í kyrrðinni fellst. Með tíð og tíma viljum við að litið sé á iðkun hugleiðslu sem sjálfsagðan hlut.
DAGSKRÁ :Friðsældinni verður fagnað sunnudaginn 23. febrúar kl. 11.00 með hóphugleiðslu sem verður haldin Í boði náttúrunnar. Á heimasíðu tímaritsins og fésbókarsíðu viðburðarins verða upplýsingar um aðila sem bjóða upp á hugleiðslu og dagskrá vikunnar kynnt. Þar verður einnig að finna fróðleik af ýmsu tagi um hugleiðslu og jákvæð áhrif hennar gegn m.a. streitu, kvíða og þunglyndi, sem hrjáir æ fleiri í þeim hraða sem einkennir samfélag okkar í dag.
Í undirbúningshóp eru: Ásta Arnardóttir, jógakennari, Jóhanna og Guðrún Kristjánsdætur, Systrasamlaginu, Sóley Elíasdóttir, frumkvöðull, Tolli, myndlistarmaður, Guðbjörg Gissurardóttir, ritstýra ÍBN og Gyða Dröfn Tryggvadóttir, verkefnisstjóri Friðsældar í febrúar.
Nánari upplýsingar gefur Gyða Dröfn Tryggvadóttir verkefnisstjóri viðburðarins í síma 697 4545 eða netfang: gyda@tonheimar.is