Ef þú kannast við þetta langar mig að deila með þér leiðinni sem ég tók til þess að yfirstíga einmitt þessar hindranir þegar kom að hreyfingu. Í þeirri von að það geti hjálpað þér að sjá möguleikana sem þú hefur í dag.
En það voru nokkrir hlutir sem ég tileinkaði mér á heilsuferðalaginu sem ég fór í gegnum (og er ennþá í), en þeir eru eftirfarandi:
Hver sagði að 60 mínútur væri sá tími sem þú þarft að hreyfa þig til þess að komast í form? Stuttar en kraftmiklar æfingar gera ótrúlega mikið fyrir þig
Bara nokkrir einfaldir hlutir eins og æfingardýna kemur þér af stað. Það er ótrúlega árangursríkt að nota eigin líkamsþyngd og þú kemst langt áfram með smá hugmyndaflugi. Einföld og ódýr tól eins og teygja, bolti eða lóð geta síðan hjálpað til við að þyngja æfingarnar og gert þær meira krefjandi.
Leiðin að betri lífsstíl er aldrei bein, ef það koma upp bakslög, byrjaðu aftur og haltu áfram. Þú getur allt ef þú virkilega vilt það.
Ég tel að allir eigi að geta fundið tíma og hreyfingu sem hentar þeim og ég vil hjálpa þér að gera hreyfingu aðgengilega og eitthvað sem þú getur gert hvar og hvenær sem er, án þess að kaupa þér kort í ræktina eða að það taki of mikinn tíma frá þér
Ef það er eitthvað sem heillar þig, skráðu þig hér og fáðu 5 kraftmiklar æfingar sem þú getur gert hvar og hvenær sem er, ásamt góðum útskýringum á hverri æfingu.
Láttu mig svo endilega vita hvernig gekk, og ekki væri verra ef þú deildir með vinum á facebook.
Heilsukveðja,
Sara Barðdal
ÍAK einkaþjálfari og Heilsumarkþjálfi
sara@hiitfit.is