Hnífsoddur af heilandi kryddjurtum getur breytt bragðlausum þeyting í ljúffenga og kraftmikla máltíð á augabragði. Þó er unaðslegur kryddkeimurinn ekki eini ávinningurinn sem hlýst af því að bragðbæta græna þeytinginn með hnífsoddi af bragðbætandi kryddi sem rífur í hálsinn – því ákveðnar gerðir af kryddi búa yfr heilandi mætti.
Hér fara fjórar gerðir ofurkrydda – sem eru sneisafull af bætiefnum sem styrkja líkamann, hver á sinn máta og hægt er að njóta aftur og aftur í fjölbreytilegustu samsetningum.
Engifer býr yfir heilandi mætti en bragðið rífur duglega í svo best er að byrja smátt. 7 mm bútur af rót samsvarar einni teskeið af malaðri engiferrót en 1 cm bútur jafngildir u.þ.b. tveimur teskeiðum. Engifer vinnur mót ógleði, róar vindverki og getur sefað bólgumyndanir í líkamanum. Fersk engiferrót er alltaf best í græna þeytinginn, þó malað engifer geti verið ágætt líka í smáum skömmtum.
Malaður, rauður pipar er gífurlega öflugur og frískar duglega upp á græna þeytinginn. Því skaltu nota þennan dásamlega pipar í litlu magni þegar þú bætir honum út í morgundrykkinn. Rauður pipar örvar blóðrásina, rífur upp og örvar efnaskiptin og sefar hungurtilfinningu.
Kanell er gífurlega styrkjandi fyrir ónæmiskerfið og er þess utan sneisafullur af kalsíum og járni. Þess utan er ljúfur ilmurinn heilandi í sjálfu sér, sefar taugarnar og hefur róandi áhrif á hugann.
Túrmerik-rótin er oftlega kölluð konungur kryddjurtanna, þar sem rótin býr yfir öflugum lækningarmætti. Talið er að túrmerik geti unnið mót gigt og jafnvel dregið úr líkum á Alzheimer sjúkdómi, en þess utan hefur túrmerik væg verkjastillandi áhrif og vinnur á móti bólgum í líkamanum.
#1 – Ágætt er að afhýða ferska engiferrót með sæmilegri teskeið.
#2 – Skerðu afhýdda rótina því næst niður í ca. ½ cm búta.
#3 – Leggðu nú bútana á bökunarpappír og láttu liggja í frysti í ca. 1 klst.
#4 – Taktu nú engiferbútana út úr frystinum og leggðu í frystipoka sem hægt er að loka.
Leggðu einfaldlega aftur í frysti og taktu svo út eftir hentugleika, þegar að notkun er komið.
Grein af vef kvon.is