Við höfum áður fjallað um undramátt rauðrófa, sem eru sneisafullar af hollum bætiefnum og eru mjög styrkjandi fyrir heilsuna. Færri vita þó að sjálfir stilkarnir sem vaxa upp af rauðrófunni og grænu blöðin eru einnig mjög holl.
2 þéttpakkaðir bollar af grófsöxuðum rauðrófustilkum
2 bollar ósæt möndlumjólk
2 bollar af berjum (blönduð, frosin ber eru mjög góð)
1 banani (má vera frosinn og niðursneiddur)
½ tsk malaður kanell
Byrjið á því að setja rauðrófustilkana og möndlumjólkina í blandarann og þeytið saman þar til blandan er orðin mjúk og áferðarfalleg. Bætið nú hinum innihaldsefnunum út í blandarann og þeytið saman þar til allt er orðið jafnt áferðar.
*ATH: Eins og tekið er fram í uppskrift, er mjög gott að nota frosna ávexti í blönduna, til að kæla og fríska upp drykkinn!
Uppskrift af vef Kvon.is