Uppskrift:
500 g KORNAX hveiti (blár poki)
2 ½ dl vatn
7,5 g þurrger
0,5 dl olía
1 tsk salt
1 tsk sykur
Aðferð:
Leysið gerið upp úr volgu vatni. Bætið KORNAX brauðhveiti, sykri, salti og olíu í og hnoðið í um það bil 2 mínútur á lægsta hraða. Aukið hraðann og hnoðið í 8 mínútur. Mótið deigið og hefið í 45-60 mínútur við stofuhita undir rökum klút.
Setjið sósu, ykkar uppáhalds álegg og ost á pizzuna.
Bakist við 220°C í 30 mínútur (án blásturs).
Góða helgi!