Þegar þú ert að spá í að gera grænan dúndur góðan drykk með rauðrófu, avókadó og sellerí, þá er það ekki akkúrat hráefnið í einn grænan.
Þegar þú ert að spá í að gera grænan dúndur góðan drykk með rauðrófu, avókadó og sellerí, þá er það ekki akkúart hráefnið í einn grænan.
En þessi kemur svo sannarlega á óvart. Þetta er drykkur númer 20 í röðinni.
Það má bæta í hann grænkáli eða spínat.
Drykkur fyrir einn.
Hráefni:
½ bolli af rauðrófum, söxuðum
¼ af avókadó
1 góður stilkur af sellerí
10 meðal stór jarðaber
1/4bolli af höfrum
240 ml af kókósvatni
Leiðbeiningar:
- Byrjaðu á að setja vökvann í blandarann og síðan mjúku ávextina.
- Bættu núna öllu grænu í blandarann og láttu á góðan hraða í 30 sekúndur.
Hafið eitthvað af ávöxtunum frosnum til að drykkurinn sé kaldur og hressandi.
Þessi drykkur er afar ríkur af B1 til B6 vítamínum, kopar, magnesíum, kalíum og zinki.
Njótið vel!