Hrökkbrauð
Það verður smá kósý í Heilsuborginni í fyrramálið.
Við ætlum að fá okkur nammi búðinginn, orkubita
og jú smá hollustu með, hrökkbrauð og túnfisksalat.
Mæli með þessu hrökkbrauði.
Innihald
3 dl. Rapunzel fræ blanda (gott að rista áður en notað)
2 dl. sesamfræ
4 dl. hörfræ
1 dl. graskersfræ
2 dl. sólblómafræ
2 dl. eggjahvítur (ég nota hvítur úr brúsa, 2 dl eru 6 eggjahvítur)
3 dl. sjóðandi vatn
1 tsk. gott fínt salt
Aðferð
Þessi uppskrift dugar á tvær bökunarplötur.
Öllu er hrært saman, gott að láta standa í 30-40 mínútur við stofuhita.
Þá er deiginu skipt í tvennt og hellt ofan á ofnskúffu með smjörpapír undir.
Deigið á að vera blautt.
Leggið smjörpappír yfir deigið og fletjið það varlega út.
Setja inní 120 gráðu heitan ofn, stilla á blástur og baka í 90 mínútur .... .fínt að hafa lengur svo verði alveg stökt.
Fer eftir ofni svo fylgjast vel með.