Súkkulaði brownies með pekanhnetum
Innihald:
1 ½ bolli pekanhnetur
2 vel þroskaðir bananar
175 gr döðlur (ef þurrar – setja þá aðeins í bleyti u.þ.b. 15 mín)
3 msk möndlusmjör eða hnetusmjör
3 msk hunang
2 msk kókosolía (brædd)
¼ bolli kakóduft
Aðferð:
- Blandið saman pekanhnetunum, 1 banana og döðlunum í matvinnsluvél þar til blandað verður mjúk.
- Dreifið blöndunni í fat sem kemst inn í frystinn og hefur verið klætt að innan með bökunarpappír.
- Blandið saman banana, möndlusmjöri, hunangi, kókosolíu og kakóduft í matvinnsluvél þar til blandan er orðin silkimjúk.
- Dreifið súkkulaðiblöndunni yfir pekanblönduna.
- Setjið í frystinn í 2 klst.
- Takið út og skerið í bita.
Njótið!
Heilsukveðja,
Ásthildur Björns