Í dag deili ég með þér helstu fæðunni fyrir meiri orku og minni bjúg! Þar að auki færð þú uppskrift af algjörri orkusprengju með íslenskum krækiberjum! Það gerist varla betra…
Grænt salat eins og grænkál, klettasalat, spínat eða lambhagasalat er ein helsta fæðan sem hjálpar til við að hreinsa og minnka bjúg, styrkja þarmaflóruna, bæta orku líkamans, byggja upp ónæmiskerfið, minnka kviðfitu og draga fram náttúrulegan ljóma!
Grænt salat hjálpar einnig til við að slá á sykurlöngun vegna beiska bragðsins sem kemur frá þeim, svo er það líka rosalega steinefnaríkt, ríkt af trefjum og próteini!
Það er auki innihalda grænu laufblöðin kalsíum, magnesíum, járni, fosfati, kalíum, zinki og A,C,E og K vítamínum.
Það að blanda grænu salati í blandara auðveldar líkamanum upptöku næringarefna.
2 góð handfylli af blaðgrænu (spínat/lambhagasalat)
1 bolli möndlumjólk (uppskrift neðar eða notið aðkeypta)
1 banani
2 msk chia fræ lögð í bleyti
Græn duft (t.d blanda frá Kiki sem fæst á Gló)
1/2 bolli íslensk krækiber, frosin
1/4 bolli (eða meira) hindber, frosin
1 tsk kókosolía brædd
50 gr möndlur
4 bollar Vatn
himalaya salt á hnífsodd eða/og 2-3 steviu dropa frá via health steviu
Að bæta við meira af grænu er lykilatriðið að aukinni orku, minni verkjum og til að komast í form á fljótlegan en náttúrulegan hátt. Enda er þetta eitt af fyrstu skrefunum í Nýtt líf og Ný áður en hópurinn byrjar svo á þriggja vikna matarhreinsun.
Hreinsun á ekki að vera kvöl og pína, hef ég fundið það út að hreinsun skilar áhrifaríkasta árangrinum þegar hún er tekin með mat eins og í þriggja vikna matarhreinsun Nýtt líf og Ný þú þjálfunar.
Hér má svo sækja leiðarvísi með fleiri girnilegum og grænum uppskriftum, fróðleik og stuttu hreinsunarprófi svo þú sjáir betur hvar líkami þinn og heilsa eru stödd. Með skráningu lærir þú einnig um skrefin sem við tökum í Nýtt líf og Ný þú þjálfun og hverskonar árangri má búast við.
Ef þú hefur íhugað hvernig það væri að breyta um lífsstíl og ert orðin leið á að enda alltaf í sama farinu… Ef þú þráir að öðlast varanlegt þyngdartap, orku og allsherjar heilsu! Er þetta tíminn þinn! (næsta þjálfun verður ekki haldin fyrren 2018)
Ég skapaði Nýtt líf og Ný þú þjálfun til þess að sýna þér leiðina VARANLEGUM árangri, leiðina sem hentar ÞÉR.
Þér er ætlað að lifa full af orku, laus við leiðindakílóin sem þvælst hafa fyrir þér, frjáls til að fara upp fjöll og firnindi án þess að verkja í skrokkinn —- lífsglöð og sátt!
Byrjaðu því að borða meira af grænu með einfalda leiðarvísinum hér og lærðu á sama tíma meira um hvernig Nýtt líf og Ný þú lífsstílsþjálfun gæti breytt lífi þínu!
Heilsa og hamingja,