Dásamlega einfaldir og sérlega bragðgóðir heimagerðir Bounty-bitar. Flottir í veisluna, saumaklúbbinn eða bara með kaffinu.
Innihald - Bitarnir:
- ½ bolli kókosmjöl (fínt)
- 2 msk kókosolía
- 1 msk hunang
- 1 msk vatn
- ¼ tsk vanilla extract dropar
- Nokkur korn af sjávarsalti
Innihald - Súkkulaðið:
- 2 msk lífrænt kakóduft
- 2 msk kókosolía
- 1 msk hunang
Aðferð:
- Fínt að byrja á því að setja kókosolíu og hunang saman í lítið glas og velgja t.d. í heitu vatni í vaskinum. Verður þægilegra að eiga við olíuna þannig.
- Kókosmjöl, kókosolíu, hunangi, vatni, vanillu extract og sjávarsalti blandað saman í skál.
- Látið standa í 5-10 mínútur til að allt kókosmjölið verði örugglega blautt í gegn.
- Fínt að nota litla kúpta skeið til að móta bitana. Á þessum tímapunkti eru þeir mjög lausir í sér. Engar áhyggjur þeir munu harðna þegar olían harðnar í frystinum.
- Bitunum raðað á bökunarpappír t.d. á lítið skurðarbretti sem kemst svo fyrir í frystinum.
- Sett í frysti í 15-20 mínútur.
Á meðan bitarnir eru í frysti er súkkulaðið gert tilbúið.
Það er einnig vel hægt að notast við tilbúið súkkulaði –þá er það bara brætt t.d. í potti eða vatnsbaði.
- Lífrænt kakóduft, kókosolía og hunang er blandað saman í skál – hér er einnig gott að setja skálina ofan í eldhúsvaskinn með heitu vatni og hræra þessu saman þar. Passa bara að vatnið sullist ekki ofan í skálina.
- Bitarnir teknir út úr frystinum.
- Ég setti nú bara bitana ofan í súkkulaðið og velti þeim þar svo þeir yrðu alveg þaktir.
- Aftur sett í frystinn í a.m.k. 10 mínútur.
Hér getur verið spurning hvort þú viljir gera aðra umferð af súkkulaðibaðinu. Ég gerði það allavegana og þá varð þetta ennþá betra.
- Svo er fínt að sáldra kókosmjöli yfir síðasta lagið af súkkulaðinu – en þú verður að hafa ansi hraðar hendur því að súkkulaðið harðnar mjög fljótt þar sem bitarnir eru ískaldir.
- Aftur sett í frystinn og tekið út t.d. 5 mínútum áður en boðið er uppá bitana (þ.e.a.s. ef þeir eru þá ekki þá þegar búnir!).
Njótið!
Ásthildur Björns
Heilsumarkþjálfi
Hjúkrunarfræðingur B.Sc
ÍAK-einkaþjálfari
Sjá fleiri uppskriftir: www.maturmillimala.com