Fara í efni

Hlustaðu á hjartað - hugleiðing Guðna á föstudegi

Hlustaðu á hjartað - hugleiðing Guðna á föstudegi

Alltaf verður þinn vilji, sama hversu veikur hann er eða hvaða tíðni þar ríkir.

Ef þú lætur þig reka í gegnum lífið þá tekur við sú innbyggða sjálfstýring sem er hluti af okkur öllum – þá taka sjálfkrafa við stjórninni gömlu forritin sem við lærðum í æsku og byggjast oft á óskynsamlegum skilyrðingum og ályktunum.

Forritin búa í magnaðri vél sem heitir heili, en heilinn vill helst af öllu vera mjög upptekinn og halda spennustiginu háu. Í huganum býr líka skortdýrið sem vill síst af öllu hlusta á hjartað og hvað það hefur til málanna að leggja.