Dílaðu við púkana og stattu mér sjálfum þér.
Góðan daginn .
Já svo sannarlega gerir þetta ekki sig sjálft :)
Að koma sér í form er HÖRKUVINNA.
Að koma huganum í form er næstum jafn stórt og kraftarverk.
Þetta gerir sig ekki sjálft...hvorki það að vinna í sjálfum sér að hraustari einstakling eða verða betri einstaklingur.
Allt er þetta þolinmæði og endalaus vinna.
Maður er mismunandi upplagður í þetta allt.
Og þennan morguninn eru púkar á sitt hvori öxlinni minni sem dansa stríðsdans við að ná athygli minni.
"Þú tókst svo vel á því í gær"
"Drífa sig í gallann"
Ég er orðin vön að díla við þessa púka
Besta ráðið ekki hlusta of lengi á þá...þeyttu þeim af öxlinni áður en allt fer í bál og brand
Hysjaðu gallann upp brostu og farðu í verkið .
Engin annar gerir þetta nefnilega fyrir þig.
Jú þetta er erfitt.
En það er líka erfitt að vera alltof þungur og í lélegu formi....
Vega og meta.
Og mitt mat smá leikfimi drepur engan :)
Svo komin í gallann.
Heilsuborgin bíður með flottan Tabata tíma og engin miskun þar.
Svo þarf að passa hugann og andlegu hliðina .
SETJA SÉR MARKMIÐ .
Þannig að ég ætla gefa mér tíma með Markþjálfa í dag og hræra aðeins upp í nýjustu markmiðunum .
Læra líka af þessum reynda Markþjálfa og bæta við í minn huga.
Lífið er leikur og ég tek sko þátt.
Hætt að fljóta með :)
Eigið góðan dag