Fara í efni

SúkkulaðiSvala pizzan fyrir Eurovisionkvöldið

Ein öðruvísi og skemmtileg fyrir kvöldið.
SúkkulaðiSvala pizzan fyrir Eurovisionkvöldið

Ein öðruvísi og skemmtileg fyrir kvöldið. 

 

Ítalskt pizzadeig

500 g blátt KORNAX brauðhveiti

2,5 dl vatn

7,5 g þurrger

0,5 dl olía

1 tsk salt

1 tsk sykur

Aðferð:

Leysið gerið upp í volgu vatni. Bætið KORNAX brauðhveiti, sykri, salti og olíu við, hnoðið í um það bil 2 mínútur á lægsta hraða. Aukið hraðann lítillega og hnoðið í 8 mínútur. Mótið deigið og hefið í 45-60 mínútur við stofuhita undir rökum klút (má sleppa).

Súkkulaðipizza

2 msk smjör

1/2 krukka súkkulaðihnetusmjör

1/2 bolli súkkulaði að eigin vali

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C. Penslið bökuna með bráðnu smjöri, bakið í um það bil 15-20 mínútur eða þar til pizzabotninn er orðinn gullinbrúnn. Takið þá pizzuna úr ofninum og smyrjið súkkulaðihnetusmjöri yfir heita pizzuna, dreifið súkkulaðibitum jafnt yfir pizzuna. Setjið aftur inn í ofn og bakið í c.a. 2-3 mínútur eða þar til súkkulaðið fer að bráðna. Skreytið með kókosflögum og jarðarberjum eftir að pizzan er komin úr ofninum.