Fara í efni

Þakklæti er ljós - Hugleiðing Guðna í dag

Þakklæti er ljós - Hugleiðing Guðna í dag

Í þakklæti vantar ekki neitt. Þá er það bara ég og heimurinn, allur, eins og hann leggur sig. Þannig skapar listamaðurinn
– í núinu skapar hann í fullkomnu frelsi.

Ég er ekki upplýstur maður sem er fullur af vitneskju heldur er ég fullur af ljósi; heilögu ljósi núsins og alls heimsins.
Þakklæti er ljós – þar með er þakklæti þverrandi myrkur. Þar með er myrkur aðeins skortur á þakklæti – vanþakklæti – því að hið eina sanna er ljós; allt annað er blekking.

Andstæða þakklætis er höfnun, viðnám, sjálfsvorkunn, þreyta og skortur. Í nútíma samfélagi verjum við mikilli orku í að ætla að verða hamingjusöm og við verðum vissulega þakklát inn á milli – helst þegar við höfum náð tilteknum árangri eða mark- miðum. Við lítum oft á gjafir tilverunnar sem áreiti frekar en ábendingu; frekar en einfalda staðreynd í heiminum sem okkur býðst að fást við.

Þannig gerum við lítið úr gæfu-gjöfunum og gerum bókstafleg ekkert úr ógæfu-gjöfunum; úr árekstrum sem hreyfa mikið við okkur. Samt felast mestu tækifærin í þeim atburðum sem opinbera okkur sjálf; þeim sem áreita okkur.

Þakklæti er ljós.
Vanþakklæti er skortur á ljósi.