Fara í efni

Við erum á mismunandi ferðalagi - hugleiðing dagsins

Við erum á mismunandi ferðalagi - hugleiðing dagsins

Umgjörðin er persónubundin

Umgjörðin er göngugrind, okkar leið til að beina athyglinni frá vana og vansæld að einhverju jákvæðu – ferli uppbyggingar og kærleika.
Umgjörðin er persónubundin og hana þarf að sníða út frá tilgangi okkar og vilja. Umgjörðin snýst um að staðfesta vilja okkar og styrkja þá staðhæfingu að við viljum annað en við höfum haft – að sýna umhverfinu og okkur sjálfum að það sé einhver tilgangur á bak við áform og annan yfirlýstan vilja. Við sönnum fyrir okkur sjálfum og hjartanu að okkur sé alvara.
Það er nauðsynlegt að breyta ferlum sínum til að staðfesta viljann og standa við fyrirheit sín til að treysta og styrkja viljann til velsældar.

Við erum á mismunandi ferðalagi, við erum ólíkar persónur – en við búum okkur til umhverfi þar sem okkar vilji fær að dafna í stuðningi þangað til við stöndum á nógu sterkum fótum til að þrífast óstudd.

Umgjörð gæti falist í eftirtöldum aðgerðum sem móta reglu og jafnvægi:
Að hreinsa upp óreiðu í umhverfi okkar – vansæld skapar óreiðu og óreiða skapar vansæld.
Að skrá fyrirætlanir sínar – það margfaldar líkurnar á árangri. 
Að næra sig markvisst og í vitund – alltaf í fullum kærleika.
Að rækta líkama sinn heilsunnar og ánægjunnar vegna – að virða líkamann sem farartæki sálarinnar og skilja að hann þarf hreyfingu.

Að koma reglu á fjármálin – að skilgreina hvernig þú vilt verja fjár- munum þínum, orku og tíma.
Að vera í félagsskap sem styður vilja velsældar – að fækka for- töluröddunum.
Að fá sér vitorðsmann – einhvern sem skilur og getur hlustað án afstöðu og meðvirkni.
Að viðhalda ferli fyrirgefningarinnar – það þarf að fara út með ruslið oft í viku.
Að nota staðhæfingar blessunar – að lýsa yfir vilja sínum í augnablikinu þannig að hjartað heyri.