Barátta gegn matarsóun borgar sig
Í september 2021 birti Umhverfisstofnun þessa frétt um nýja aðgerðaáætlun gegn matarsóun sem hafði verið lögð fram af umhverfis- og auðlindaráðherra. Hún samanstendur af 24 aðgerðum sem snúa að allri virðiskeðju matvæla, frá frumframleiðslu til neytenda. Markmið aðgerðanna er að minnka matarsóun um 30% fyrir árið 2025 og um 50% fyrir árið 2030.
„Með því að minnka matarsóun drögum við úr losun gróðurhúsalofttegunda, myndun úrgangs og ágangi á takmarkaðar auðlindir jarðar. Við aukum fæðuöryggi, styðjum við líffræðilega fjölbreytni og spörum peninga. Þessi barátta margborgar sig.” segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Samstillt átak stjórnvalda, atvinnulífs og almennings
Framkvæmd 15 aðgerða er á ábyrgð stjórnvalda og 9 aðgerða á ábyrgð atvinnulífsins. Aðgerðunum má skipta í fjóra flokka:
- Atvinnulífið og aukið samstarf
- Rannsóknir og nýsköpun
- Menntun og fræðsla
- Hagrænir hvatar og regluverk
Áætlunin er í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og stefnu um úrgangsforvarnir. Hún gerir ráð fyrir samstilltu átaki samfélagsins alls; atvinnulífs, almennings og stjórnvalda.
Á meðal aðgerða eru að:
- Að auka samstarf atvinnulífs og stjórnvalda.
- Að koma á fót reglulegum mælingum á matarsóun.
- Að innleiða á hagræna hvata.
- Að auka menntun og fræðsla.
- Að styðja við nýsköpun, rannsóknir og þróunarvinnu sem dregur úr matarsóun.
- Ábyrgð Umhverfisstofnunar
Ábyrgð Umhverfisstofnunar
Umhverfisstofnun kemur að fjölda aðgerða í samstarfi við hagaðila. Stofnunin ber ábyrgð á að koma á reglubundnum mælingum á matarsóun og að rannsaka orsakir matarsóunnar á heimilum. Auk þess ber Umhverfisstofnun ábyrgð á upplýsingamiðlun um matarsóun og matarsóunarverkefni og að nýta fjölbreyttar aðferðir til þess að veita almenningi stuðning við að draga úr matarsóun.
Starfshópur um áætlunina
Aðgerðaáætlunin byggir á vinnu starfshóps sem skipaður var árið 2019 til að móta tillögur gegn matarsóun. Í starfshópnum sátu auk fulltrúa Umhverfisstofnunar, fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs og frjálsra félagasamtaka.
Hvað getum við gert?
Á heimasíðu Saman gegn sóun má finna ýmis ráð til þess að koma í veg fyrir matarsóun.
Birt með góðfúslegu leyfi Umhverfisstofnunar