Fara í efni

Lætur þú bólusetja þig gegn hinni árlegu inflúensu ?

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú tilbúið til afhendingar hjá Parlogis ehf
Lætur þú bólusetja þig gegn hinni árlegu inflúensu ?

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú tilbúið til afhendingar hjá Parlogis ehf.

Bóluefnið inniheldur vörn gegn svínainflúensunni sem gekk hér 2009–2010 og að auki vörn gegn inflúensu af stofni H3N2 og inflúensu B.

 

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Þungaðar konur.

Almenn bólusetning er í höndum heilsugæslunnar en auk þess er bólusett á sjúkrastofnunum og ýmis fyrirtæki hafa tekið að sér bólusetningu almennings og starfsmanna.

Þessir aðilar munu á næstunni auglýsa hvernig bólusetningunni verður háttað á þeirra stofnun, en yfirleitt er byrjað að bólusetja í október.
Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu.

Eins og undanfarin ár er ekki nákvæmlega vitað á þessari stundu hvaða tegund inflúensu muni herja á landsmenn veturinn 2016 til 2017. Inflúensan er enn ekki farin að láta á sér kræla hér á landi en ávallt má búast við henni í kringum áramótin.

Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Dreifibréf nr. 1/2016. Bólusetning gegn inflúensu.

Sóttvarnalæknir