Fara í efni

Láttu draumana rætast.

Lífið er til að njóta. Láttu þig dreyma og eigðu þínar óskir :) Og það sem best er láttu draumana rætast.
Lífið er til að njóta.
Lífið er til að njóta.

Góðan daginn frá London þennan morguninn :)

Komin á stjá og búin að næra mig vel.
Morgunverðahlaðborðin á hótelum eru misjöfn.
Þetta var í fínu lagi…..en ég var nú samt með nesti ef “ske” kynni að það væri ekkert fyrir svona konu úr Seljahverfinu að borða.
Vera ávalt viðbúin :)
Ekki detta í sukkið.

Besta samt við hótelið að lyftan er svo hæg að það er fljótara að hlaupa upp á fjórðu hæðina en skrölta með því handsnúna ( pottþétt handsnúin lyftan)
Svo aukaæfing !

Annars er bara næst á dsgská að koma sér út í góða veðrið njóta Lundúna og versla .
Skella sér svo í party aldarinnar með kvöldinu :)
Afmælisparty hjá vinum.
Og þetta verður alvöru.

Lífið er til að njóta.
Láttu þig dreyma og eigðu þínar óskir :)
Og það sem best er láttu draumana rætast.

Eigið góðan dag.