Dásamleg parmesanbaka með spínati og kirsuberjatómötum
Þessi dásamlega baka með smjördeigsbotni er ótrúlega einföld og svo ótrúlega góð.
Hún er frábær sem léttur kvöldverður með einföldu salati og sómir sér vel á hlaðborði, í saumaklúbbinn og í „brunchinn“.
Bakan er með parmesan-, spínat- og blauðlauksfyllingu og toppuð með kirsuberjatómötum. Fullkomin á haustkvöldi.
Það var hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem töfraði þetta fram.
Parmesanbaka með spínati og kirsuberjatómötum
Það sem þarf
- 3 plötur smjördeig (um 250 g)
- 1 púrrulaukur
- 150 g spínat
- 100-150 g ferskrifinn parmesan
- 3 egg
- 1 dl rjómi
- 1 dós (400 g) kirsuberjatómatar í dós
- salt
- pipar
Aðferð
Fletjið smjördeigið út og þekjið bökumót sem er um 24 sm í þvermáli með því. Stingið um botninn með gaffli og látið síðan í frysti í 30 mínútur.
Hitið ofninn í 225°.
Forbakið bökuskelina í 15 mínútur í miðjum ofni. Takið skelina að því loknu úr ofninum og lækkið hitann niður í 200°. Ef smjördeigið hefur blásið upp við baksturinn þá er botninum á því þrýst aftur niður.
Skolið púrrulaukinn og skerið hann í strimla.
Hitið olíu á pönnu og steikið púrrulaukinn þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið þá spínatinu á pönnuna og steikið áfram þar til spínatið er orðið mjúkt.
Setjið púrrulauk, spínat og rifinn parmesanost í bökuskelina.
Hrærið egg og rjóma saman og kryddið með salti og pipar. Hellið hrærunni yfir fyllinguna og toppið með hálfum kirsuberjatómötum.
Bakið í miðjum ofni í um 30 mínútur.
Njótið!
Uppskrift af vef kokteill.is