GEGGJAÐ Avókadó kjúklinga salat – fullkomin máltíð
Ef þig vantar auðvelda leið til að elda kjúkling sem nota á í salat þá er þetta leiðin: Taktu beinlausan og skinnlausan kjúkling og settu á pönnu á háan hita og láttu vatn fljóta yfir hann. Látið suðuna koma upp, setjið lok á pönnu og lækkið hitann vel.
Ef þig vantar auðvelda leið til að elda kjúkling sem nota á í salat þá er þetta leiðin: Taktu beinlausan og skinnlausan kjúkling og settu á pönnu á háan hita og láttu vatn fljóta yfir hann. Látið suðuna koma upp, setjið lok á pönnu og lækkið hitann vel.
Leyfið að malla í hálftíma, takið kjúkling og setjið á skurðbretti og leyfið honum að kólna í hálftíma. Ef kjúklingur er eldaður svona þá er afar einfalt að rífa hann niður til að nota í salat. Einnig má gufusjóða kjúklinginn í þar til gerðum potti.
Uppskrift er fyrir tvo.
Hráefni:
2 kjúklingabringur, bein og skinnlausar – eldaðar og rifnar niður
½ bolli af ferskum basilíku laufum – fjarlægja stilkinn
2 lítil avókadó – þroskuð, hreinsa og fjarlæga hýði
2 msk af extra virgin ólífuolíu eða nota þína uppáhalds
½ tsk af sjávarsalti – eða eftir smekk
1/8 tsk af ferskum svörtum pipar – eða eftir smekk
Það sem þú þarft:
Matarvinnsluvél
Skeið til að hræra með
Mælibolli og mæliskeiðar
Meðal stór skál
Leiðbeiningar:
- Takið eldaða kjúklinginn og rífið niður og setjið í meðal stóra skál.
- Setjið basilíkublöð, avókadó, olíuna, saltið og svarta piparinn í matarvinnsluvél og látið blandast þar til mjúkt. Notaðu spaða til að hreinsa af hliðum skálar og blandaðu svo betur.
- Helltu þessari blöndu í skálina með kjúklingnum og hristið saman – allt á að blandast vel. Smakkið til með salti og pipar.
- Geymið í ísskáp þar til salat er borið fram.
Njótið vel!