Fara í efni

Mánudagur og fínn dagur.

Svo að yfirkeyra sjálfan sig er ekki í boði lengur. Heldur hlusta á hvað maður sjálfur hefur um þetta allt að segja .
Frábær dagur.
Frábær dagur.

Góðan daginn .

Á svona mánudegi er þetta einmitt málið :)
Bara frábær dagur til að hafa frábæran dag.
Hringdi næstum á vælubílinn í gær var svo búin á því og slöpp....rauk upp í hita og beinverkjum.
Held ég hafi bara verið svona mikið þreytt.

En núna er komin önnur vika og ekki séns að vera heima í bómul.
Skólinn framundan og London í lok vikunar.
Kíkja á vorið og fara í afmæli sem verður nú eitthvað 
Svo að vera búin á því , þreytt eða flensuð ekki í boði .

Það er svo endalaust margt sem maður getur verið þakklátur fyrir ef maður dettur í smá uppgefin gír.
Bara muna að maður er ekki ekki "Súperhero" og algjörlega mannlegur í öllu.
Svo að yfirkeyra sjálfan sig er ekki í boði lengur.
Heldur hlusta á hvað maður sjálfur hefur um þetta allt að segja .

En það er komin mánudagur ég er komin í gallann þetta verður frábær dagur og spennandi vika framundan .
Allt er hægt ef vilji er fyrir verki :)

Eigið góðan dag.