Grænmetis bolognese með mascarpone - Eldhúsperlur
Það hefur lengi verið á framkvæmdarlistanum hjá mér að deila þessari uppskrift að bolognese sósu með ykkur. Ég sá uppskriftina fyrst fyrir nokkrum árum í ítölskum matreiðsluþætti á Food network þar sem hún Giada De Laurentiis töfraði fram, að mér fannst, alveg óendanlega girnilega bolognese sósu sem var eingöngu búin til úr grænmeti.
Þetta var á því tímabili hjá mér þar sem ég var hálf afhuga nautahakki og hefðbundið bolognese var því ekki ofarlega á óskalistanum hjá mér. Það tímabil er nú reyndar liðið að mestu en ég slæ hendinni þó aldrei á móti góðum grænmetisrétti og gæti vel látið kjötmeti alveg í friði í lengri tíma án þess að sakna þess mikið. Þessi sósa er líka þeim eiginleikum gædd að krakkar borða hana með bestu lyst og gera sér enga grein fyrir magninu af grænmeti sem þau eru að borða. Það er alltaf kostur í mínum bókum!
Ég hripaði á sínum tíma niður á miða það sem ég mundi úr þessum matreiðsluþætti og hef síðan stuðst við það en geri nú alveg einhverjar breytingar í hvert skipti sem ég elda þennan rétt, það fer svolítið eftir því hvað er til í ísskápnum. Ég myndi þó segja að rauð paprika, laukur, gulrætur og sveppir væru alveg nauðsynleg. Öðru má bæta við eftir smekk eða eftir því sem til er í hvert skipti. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekkert mál að gera grænmetis bolognese úr allskonar grænmeti. Þessi sósa er samt alveg sér á báti, ótrúlega matarmikil og bragðgóð og eiginlega þannig að ég er handviss um fólk átti sig varla á því að það er ekki kjöt í henni.
Grænmetis bolognese:
- 2 rauðar paprikur
- 3-4 gulrætur
- 1 laukur
- 4-5 hvítlauksrif
- 1 bakki sveppir
- 1 tsk rósmarín
- 3 msk ólífuolía
- 2 msk tómatpaste
- 1 glas rauðvín (ca.2 dl)
- Þurrkað óreganó og steinselja (ca. 1 tsk af hvoru)
- 2 msk mascarpone ostur (eða venjulegur hreinn rjómaostur)
- 2 tómatar gróft saxaðir (má sleppa)
- 1 dl vatn og 1/2 grænmetisteningur
- Salt, pipar og nýrifinn parmesan ostur
Aðferð:
Skerið paprikuna, laukinn, helminginn af sveppunum (eða alla ef þið vijið ekki hafa bita í sósunni) og hvítlaukinn gróft niður.
Setjið í matvinnsluvél ásamt rósmarín og látið vélina ganga þar til grænmetið er allt smátt saxað.
Hitið olíu á pönnu og látið grænmetismaukið krauma á pönnunni í 5 mínútur.
Bætið þá útí tómatpaste og steikið aðeins áfram.
Setjið sveppina þá samanvið og leyfið þeim aðeins að steikjast.
Hellið þá rauðvíninu út á ásamt vatni og grænmetistening og leyfið þessu að sjóða aðeins niður.
Kryddið til með þurrkuðu oregano og steinselju.
Setjið þá mascarpone ostinn útí og látið hann bráðna saman við sósuna.
Bætið gróft skornum tómötum saman við og smakkið til með salti, pipar og parmesan osti.
Berið fram með salati, taglietelle og nýrifnum parmesan osti.
Birt í samstarfi við