Grænn og góður með ferskjum, jarðaberjum og chia fræjum
Chia fræjin í þessum gera það að verkum að hann er ríkari af próteini og Omega-3 fyrir vikið.
Chia fræjin í þessum gera það að verkum að hann er ríkari af próteini og Omega-3 fyrir vikið.
Aðeins 2 msk af chia fræjum innihalda 2,4 gr af próteini og 240% af RDS af Omega-3.
Til að hafa þennan drykk extra ferskan skal nota frosin jarðaber.
Uppskrift er fyrir einn. Og er þetta drykkur númer 16.
Hráefni:
2 meðal stórar ferskjur, steinninn úr
5 meðal stór jarðaber – frosin
3 bollar af baby spínat
2 msk af chia fræjum, láta liggja í bleyti í 5 mínútur
1 bolli af möndlumjólk – má nota meira
Leiðbeiningar:
- Byrjaðu á því að setja vökvann í blandarann. Og síðan mjúku ávextina.
- Bætið núna þessu græna við og notið hröðustu stillingu á blandaranum ykkar, látið hrærast í 30 sek.
Þessi drykkur er afar ríkur af vítamínum eins og B1 til B6, K-vítamíni, kopar,magnesíum, kalíum og zinki.
Njótið vel!