Hollustu bláberjasmákökur - glútenlausar
Nú eru margir farnir að huga að bakstursmánuðinum mikla og jafnvel búin að taka forskot á sæluna og nú þegar byrjuð að baka. Ég baka reyndar allan ársins hring og átti alveg haug af bláberjum í frystinum þannig að úr urðu þessar gómsætu glútenlausu bláberjasmákökur.
Hollustu bláberjasmákökur
Bláberjasmákökur – glútenlausar. Nú eru margir farnir að huga að bakstursmánuðinum mikla og jafnvel búin að taka forskot á sæluna og nú þegar byrjuð að baka.
Ég baka reyndar allan ársins hring og átti alveg haug af bláberjum í frystinum þannig að úr urðu þessar gómsætu glútenlausu bláberjasmákökur.
Innihald:
2 bollar möndlumjöl
½ tsk sjávarsalt
1 tsk matarsódi
½ - 1 tsk kanill
¼ bolli kókosolía
3 msk hunang
2 tsk vanilla extract
½ bolli smátt saxaðar möndlur
1 bolli frosin bláber
Aðferð:
Möndlumjöl, salt, kanil og matarsóda er blandað veel saman í matvinnsluvél.
Kókosolíu, hunangi og vanillu extract bætt við.
Setjið í skál og blandið söxuðu möndlunum og bláberjunum saman við með sleif.
Notið t.d. ískeið og mótið litlar kúlur og raðið þeim á bökunarpappír. Gott að þrýsta aðeins ofan á kúlurnar.
Bakað við 180gr í 10-15 mín eða þar til orðið gyllt að lit.
Leyft að kólna á plötunni í 15 mín svo þær molni síður.
Geymdar í kæli.
Njótið!
Heilsukveðja,
Ásthildur Björns