Innköllun á Matfugls kjúklingastrimlum
Listeria mengaðir kjúklingastrimlar.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Matfugli ehf. að við innra eftirlit fyrirtækisins hafi greinst mengun af völdum Listeria monocytogenis.
Um er að ræða innköllun í varúðarskyni á einni framleiðslulotu af kjúklingastrimlum.
Upplýsingar um vöruna:
Vöruheiti: Matfugls kjúklingastrimlar
Framleiðandi: Matfugl ehf
Nettóþyngd: 300 gr
Lotunúmer: 3101126331
Best fyrir: 03.09.2016
Geymsluskilyrði: Kælivara
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að skila henni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verlsun.
Beðist er velvirðingar á óþægindum sem innköllunin kann að valda neytendum.
Nánari upplýsingar um Listeria monocytogenes má finna á vefsíðu Matvælastofnunar, www.mast.is