MOGUNVERÐUR: Bláberjadrykkur með súkkulaðiflögum, eplum og chia fræjum
Vá, það þarf ekki að tíunda hversu hollur þessi drykkur er, eða eins og margir gera, setja hann í skál og borða með skeið.
Vá, það þarf ekki að tíunda hversu hollur þessi drykkur er, eða eins og margir gera, setja hann í skál og borða með skeið.
Þetta er eins og að byrja daginn á eftirrétti sem er stútfullur af næringarefnum og fyllir magann vel fram eftir degi.
Uppskrift fyrir einn.
Hráefni í grunn:
1 frosinn banani
1 bolli af bláberjum – mega vera frosin
1tsk af ósætu cocoa dufti
1 bolli af möndlumjólk
Toppar:
½ epli, skorið í bita
1/8 bolli af hindberjum
1 msk af súkkulaðiflögum – nota dökkt súkkulaði
1 tsk af chia fræjum
1 tsk af maple sýrópi
Leiðbeiningar:
- Gerið grunninn. Setjið banana, bláber, cocoa og möndlumjólk í blandara og blandið þar til mjúkt. Hellið í skál.
- Bætið ofan á toppunum ykkar. Eplum, hindberjum, súkkulaðiflögum og chia fræjum og dreifið sýrópi jafnt yfir skálina.
Ef þú vilt ekki nota chia fræ þá má nota þessi í staðinn:
Hemp fræ
Sólblómafræ án skeljar
Sesam fræ
Hörfræ
Verði ykkur að góðu og njótið vel!