Fara í efni

Skiptir aldurinn virkilega máli?

„Þú hefur fallið fyrir 20 árum yngri konu eða karlmanni og hún/hann fyrir þér“, segir í grein á systurvef Lifðu núna aarp.org, sem kemur hér í lauslegri þýðingu.
Skiptir aldurinn virkilega máli?

Vinir þínir segja að þú sért uppi í skýjunum – geta þeir ekki séð að þú ert ástfanginn?

Þeir efast um ásetning ungu konunnar, eða mannsins og telja jafnvel að hún/hann sé eingöngu á höttunum eftir peningunum þínum, eða að þetta snúist eingöngu um kynlíf.

Þeir vara þig við því, að sé þetta ekki stundarhrifning, þá eigir þú eftir að enda einmana og fátæk/ur, nema hvorutveggja sé.

 

Sýnir þetta ekki bara hversu mikinn stuðning þú færð? En svo allrar sanngirni sé gætt, þá gætu vinir þínir haft sitthvað til síns máls. Það er örvandi að vera með einhverjum sem er öðruvísi og það fylgir því ákveðið stolt að yngri kona eða maður skuli laðast að þér. En eins og þú veist, snýst nýja sambandið ekki eingöngu um það. Þannig að þú getur leitt þessar athugasemdir hjá þér.

Mörg pör hafa yfirstigið þessar aldurshindranir og eru hamingjusamlega gift, eða hafa verið í góðu sambandi áratugum saman. Eitt þekktasta dæmið er Michael Douglas sem er 68 ára og Catherine Zeta-Jones 43 ára, sem hafa lengi staðið saman og stutt hvort annað í alvarlegum veikindum. Annað dæmi er gítarleikarinn úr Rolling Stones, Ronnie Wood, sem er 65 ára. Hann kvæntist leikhúsframleiðandanum Sally Humphreys sem var 34 ára, fyrir tæpum þremur árum.

Menn ræða ekki jafn mikið um það þegar konan er miklu eldri en karlinn. Getur verið að karlar hafi meiri áhuga á ungum og fallegum maka, en konur? Kannski er það tilfellið, en ég held að þar séu aðrir kraftar að verki. Konur langar ekki að finna móðurtilfinningu gagnvart ungum elskhuga og þær vilja heldur ekki að hann líti á þær sem mæður sínar. Þessi staðreynd hefur hugsanlega stoppað konur af, í því að leita félagsskapar miklu yngri karla.

En allt vekur þetta upp þá stóru spurningu, hvort það sé gáfulegt eða kannski bara heimskulegt, að taka upp samband við 20 árum yngri maka, þegar menn eru orðnir 50, 60 eða 70 ára?

Svarið við þeirri spurningu gæti legið í svarinu við eftirfarandi spurningum.

  • Er eitthvað meira á milli ykkar en líkamlegt aðdráttarafl?
  • Finnst þér gaman að vera með vinum kærastans/kærustunnar? Finnst honum/henni gaman að gera með þínum vinum? Ef svo er ekki getið þið gefið hvort öðru það sjálfstæði sem er nauðsynlegt til að viðhalda vinskap, sem þið deilið ekki?
  • Ert þú tilbúin/n til að skilja að þið eruð á sitt hvorum staðnum í lífinu. Annað kannski komið á eftirlaun, en hitt enn að vinna? Þetta getur valdið því að þið eruð með mismunandi plön í gangi. Vikuleg rútína er ekki sú sama og frítíminn ef til vill ekki heldur.
  • Hefurðu nógu sterk bein til að takast á við það að líklega mun sá sem er eldri í sambandinu verða fyrri til að veikjast alvarlega, en sá sem er yngri?
  • Geturðu gert málamiðlanir? Heilsufarsvandamál geta haft áhrif á félagslíf fólks og ferðaplön geta raskast vegna þeirra.

 

Lestu þessa grein til enda HÉR

Grein af vef lifdununa.is