Sólþurrkað tómatpestó
Æðisleg uppskrift að tómatpestó frá Ljómandi.
Hér höfum við æðislega uppskrift af sólþurrkuðu tómatpestó frá Ljómandi.
Sólþurrkað tómatpestó: / 1 bolli sólþurrkaðir tómatar (eða ein krukka sem er ca. 300 g) / smá sítrónusafi og sítrónubörkur / 2 hvítlauksgeirar / lúka af ferskri basilíku / 1/2 rauður laukur / 1/2 bolli kaldpressuð ólífuolía / 1/2 bolli furuhnetur / smá himalayan salt / 1/3 bolli parmesan ostur.
- Setjið alllt í matvinnsluvélina eða blandara og mixið í smá stund en samt ekki þannig að það verði of þunnt, gott að hafa smá áferð.
- Frábært að setja innan í grænmetisblað í staðinn fyrir brauð og fá próteinið úr eggjunum.
Ég elska pestó og gæti lifað á því. Þegar við förum í ferðalög tek ég alltaf eitthvap svona með okkur. Frábært meðlæti með mat og milli mála.
Uppskrift frá Ljomandi.is