Víðavangshlaup Saucony og Framfara 2013
Saucony á Íslandi kynnir 10. Víðavangshlauparöð Framfara.
Hlaupin eru fjögur og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 11:00 á laugardagsmorgnum í október og nóvember.
Um tvær vegalengdir er að ræða, “stutt” og “langt” hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 700-800m og það langa 4-7.5km.
Keppnisgjald er 500kr en ókeypis fyrir börn undir 12 ára aldri.
Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar:
- 5.október við Elliðavatnsbæ
- 12.október við Reynisvatn
- 19.október við Borgarspítala
- 2.nóvember á Tjaldstæðinu í Laugardal
Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna og veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá einstaklinga í stigakeppninni að hlaupunum loknum. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni en aðeins þrír bestu keppnisdagar gilda í lokin. Þannig er óhætt að forfallast í einu hlaupi.
Hlaup 1, Elliðavatnsbær, 5.október:
Hringurinn er 1km að lengd og alfarið á malarstígum. Ein brött brekka, annars tiltölulega flatt. Ekki er mælt með að hlaupa á gaddaskóm.
Hlaupinn er 1 hringur (1km) í stutta hlaupinu en 4 (4km) í því langa.
Bílastæði eru við Elliðavatnsbæ.
Hlaup 2 – Reynisvatn – 12.október
Hringurinn er um 1300m að lengd, á malarstíg í kringum vatnið. Hægt er að hlaupa á gaddaskóm, mögulega betra að vera á utanvegaskóm eða flötum. Hlaupinn er 1 hringur (1.3km) í stutta hlaupinu en 4 (5.2km) í því langa. Bílastæði eru við veiðihúsið.
Hlaup 3, Borgarspítali, 19.október
Hringurinn er 1km að lengd, tæknilegur, hæðóttur og á köflum mýrlendur. Hægt er að hlaupa í gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1km) í stutta hlaupinu en 6 (6km) í því langa.
Bílastæði eru við spítalann.
Hlaup 4 – Tjaldstæði og þvottalaugar í Laugardal – 2.nóvember
Hringurinn er 1.5km að lengd, tæknilegur og með nokkurri hækkun. Hlaupið er á grasi (mestmegnis) og möl. Mælt er með að hlaupa á gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1.5km) í stutta hlaupinu en 5 hringir (7.5km) í því langa.
Bílastæði við Farfuglaheimilið eða Skautahöllina í Laugardal. Rásmark er inni á tjaldstæðinu.
Síðasta hlaupið gegnir jafnframt hlutverki brautarprufu og síðasta úrtökumóts fyrir Norðurlandamótið í Víðavangshlaupum sem fer fram á sama stað 9.nóvember.
Saucony hlaupaskórnir fást í Afreksvörum , Álfheimum 74 , Simi 533 1020 - Hjá honum Danna okkar sem veit allt um skó og aukahluti sem til þarf til hlaups. Heimasíða www.afrek.is