Ég elska að hreyfa mig á morgnanna, það gefur svo góða byrjun inn í daginn og hjálpar mikið við matarræðið því þegar maður æfir þá kallar líkaminn á hollari næringu og er miklu orkumeiri fyrir vikið.
Þetta er því ekki spurning að mínu mati, en margir eiga erfitt við að koma sér á fætur og vinnur snooze takkinn oft baráttuna!
Í dag langar mig að deila með þér 9 hollráðum sem gætu hjálpað þér við að standa við gefin loforð gangvart sjálfri þér.
Ímyndaðu þér sjálfan þig vakna fulla af orku, taka æfingu og upplifðu ánægjuna og stoltið sem þú finnur þegar þú ert búin. Fókusaðu á að upplifa þig sem manneskju sem nýtur þess að æfa á morgnanna og gerðu það síðan að veruleika.
Vertu búin að setja æfingarfötin fram, vertu búin að ákveða hvað þú ætlar að fá þér í morgunmat, hvaða æfingu þú ætlar að taka og gerðu allt tilbúið eins vel og þú getur. Það auðveldar mér alveg helling að þurfa ekki að fara út úr húsi, heldur bara skella dýnu á stofugólfið og hefjast handa.
Settu síman eða vekjaraklukkuna hinu megin í herbergið þannig þú þarft að standa upp til þess að slökkva á henni. Kveiktu síðan ljósið og jafnvel á tónlist til þess að koma þér í gírinn.
Skrifaðu niður setningar á miða sem þú setur á spegilinn, vegginn eða þar sem þú sérð hann strax á morgnanna sem gefa þér hvatningu til þess að standa við heilsumarkmiðin þín. Hér koma nokkur dæmi:
Fáðu þér smá að borða og stórt vatnglas og lofaðu sjálfri þér góðum morgunmat þegar þú ert búin. Það er ekki gott að borða of mikið fyrir æfingu, en mér finnst gott að fá mér 1/2 banana (sumir nota smá hnetusmjör með fyrir auka orku), eða lítinn skammt af höfrum eða chia graut sem gefur mér orkuna til þess að keyra mig vel áfram.
Ekki leyfa neinu rugli að koma í veg fyrir æfinguna þína. Segðu sjálfri þér að snooze sé ekki í boði lengur og vertu ákveðin þegar vekjaraklukkan hringir.
Það þýðir ekki að hanga yfir sjónvarpinu langt fram eftir kvöldi ef þú ætlar að vakna kl. sex daginn eftir. Ekki skemma fyrir sjálfri þér fyrirfram og kvarta yfir þreytu ef þú ert síðan að hanga yfir þáttum fram að miðnætti. Farðu að sofa um tíu á kvöldin þannig að þú náir þínum 8 tímum.
“Þrátt fyrir tæplega 15 tíma vinnudag í gær þá vaknaði ég á undan klukkunni í morgun & gat ekki hugsað mér að sleppa æfingu - held að æfingin bjargi mér (geðheilsunni) í þessari vinnutörn!”
Það er ekki skrítið að það sé erfitt að vakna ef maður er að fara gera eitthvað sem manni þykir leiðinlegt. Mikilvægt er að finna hreyfingu sem þú nýtur og hlakkar til þess að gera.
Svo margar stelpur sem hafa aldrei fundið sig í líkamsrækt deila með mér hvað þær elska að gera æfingarnar í þjálfun og þær séu svo glaðar að hafa fundið eitthvað sem þeim þykir skemmtilegt.
“Þetta prógram hentar mér svo vel að ég bara elska það!! Hef oft farið í hópleikfimi og tel niður mínúturnar þar til tíminn er búinn....en ekki núna mig hlakkar til að gera æfingarnar mínar”
Það er í raun engin “besti” tími til þess að æfa. Það sem skiptir máli er að þú finnir það sem hentar þér best og þú heldur þig við. Morgnarnir henta mér best því þá er ég orkumest, en það þýðir ekki að það henti þér endilega.
Ef þú varst ekki búin að heyra þá er ég að halda ókeypis jólaþjálfun í desember!
Skráðu þig ókeypis hér og fáðu:
"Það sem stendur uppúr er líkamleg og andleg líðan sem hefur aukist svo mikið. Svo skemmir ekki hvað æfingarnar eru allar skemmtilegar, fjölbreyttar og krefjandi og mig hlakkar til að gera nýja æfingu á hverjum degi. Í fyrsta skipti í langan tíma á ég verka lausa daga og vá hvað er dásamlegt! Þetta er sko komið til að vera í mínu lífi og ef ég léttist samhliða þá er það plús 💪🏻😍-" Ásta Rut
Heilsukveðja,
Sara Barðdal
ÍAK einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi