Það skiptir engu máli hvað gerist.
Það eina sem skiptir máli er hvað þú gerir, eftir að eitthvað gerist. Þín viðbrögð – hvort þú velur viðbragð eða bregst við með kæk og á forsendum skortdýrsins.
Hvað gerirðu? Viðbrögðin hafa allt með það að gera hvort þú stefnir til vansældar eða velsældar. Viðbrögðin opinbera heimildina þína – hvort þú sparkar í þig liggjandi eða reisir þig á fætur í fullum kærleika.Hvort þú elskar þig samt. Hvort þú vilt fyrirgefa þér.
Áföllin skilgreina okkur – og oft þarf áföll til að við vöknum upp úr kækjum skortdýrsins, upp úr fjarverunni.
Áföllin rista svo djúpt í okkar tilfinningalíf að í þeim felast mikil tækifæri til vaxtar og rýrnunar. Dauðsföll, slys, skilnaðir. Skilnaður er eitt það erfiðasta sem nokkur manneskja getur gengið í gegnum. En þar liggur stór vaxtarsproti:Þú skilur þegar þú skilur. Þú færð tækifæri til að skilja þegar þú ert að skilja.
Þegar þú skilur ekki við skilnað, þá skilurðu aldrei.