Það er súkkulaði í henni og hef ég alltaf fengið hana með Toblerone í en upp á síðkastið hef ég gert hana með suðusúkkulaði nú eða suðusúkkulaði með appelsínubragði því að systir mín er með ofnæmi fyrir hnetum og getur því miður ekki borðað hana með Toblerone í svo að þegar þið prófið þessa þá skellið þið bara í hana uppáhalds súkkulaðinu ykkar.
3 egg
100 gr sykur
2 msk hveiti
2 tsk lyftiduft
75 gr kókósmjöl
3 græn epli
1 pera
1 meðalstórt Toblerone eða 150 gr suðusúkkulaði
kanilsykur
Forhitið ofninn í 180°C.
Setjið egg og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið þangað til blandan verður létt og ljós. Blandið þá saman við hveitinu og lyftiduftinu og að lokum kókósmjölinu.
Takið eplin og peruna og afhýðið og skerið í litla bita. Setjið í eldfast mót, dreifið súkkulaðinu á milli eplana, dreifið vel af kanilsykri yfir allt þannig að það þekji aðeins og hellið svo deigblöndunni yfir.
Bakið í 30 mínútur. Berið fram með ís eða rjóma og njótið ofsa vel.
Uppskrift fengin af vef loly.is