Þessi drykkur virkar einstaklega vel, kemur okkur af stað og gerir okkur tilbúin fyrir daginn en einnig gefur þetta okkur orku og næringu.
Ég set þetta í safapressuna (djúsarann) og uppskriftin dugir í eitt venjulegt glas!
6 gulrætur
1 frekar stór epli
engifer eftir smekk (engferði er bragðmikið þannig ég nota ekkert rosalega mikið)
klaka
Ég tek utan af gulrótunum, eplinu og engiferinu set það í djúsvélina.
Þegar að allt er komið í glasið er gott að setja smá klaka, en eftir svona orkuskot erum við svo tilbúin að takast á við daginn.
Birt í samstarfi við
Tengt efni: