Frábært múslí, blandað með jógúrt og allskyns ávöxtum. Stútfullt af næringu og ein skál í maga endist þér fram að hádegi. Ekkert nart kl. 10.
Uppskrift er fyrir einn skammt.
½ bolli af hreinum jógúrt eða grískum jógúrt
½ bolli af bláberjum – ferskum eða frosnum (muna að láta þau þiðna)
¼ bolli af niðurskornum eplum – smáir bitar
¼ bolli af banana í bitum
¼ bolli af góðu ósætu múslí
1-2 tsk af hrá hunangi eða maple sýrópi
Hrærið saman jógúrt, bláber, epli, banana, múslí og sætuefnið (hunang eða sýróp) og smakkið til í skál.
Þessi múslíblanda er tilbúin til að borða strax.
Ath: Hægt að búa til kvöldið áður og geyma í kæli í 1 dag í góðu lokuðu boxi.