Fullkomið í nestið, frábært í pikk nikk körfuna, gott að grípa í heima og ástæðan er þessi: Glúten og sykurlaust.
Sjúklega girnilegar múffur
Fullkomið í nestið, frábært í pikk nikk körfuna, gott að grípa í heima og ástæðan er þessi: Glúten og sykurlaust.
Þannig að ef þú bakar þetta í bílförmum og gefur börnunum þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að þau fari í sykurvímu.
Hráefni:
2 bollar af heilum möndlum
½ bolli af rifinni kókóshnetu
1 tsk af glútenlausu bökunardufti
½ bolli af kókóssykri eða rapadura sykri
4 egg
1 tsk af vanillabauna mauki
½ bolli af extra virgin kókóshnetuolíu – bráðinni
½ bolli af ferskum eða frosnum hindberjum – mátt nota eins mörg og þú vilt
Leiðbeiningar:
- Hitaðu ofninn í 170 gráður.
- Skelltu múffuformunum í múffubakkann sem fer í ofninn.
- Settu möndlurnar í matarvinnsluvélina og malaðu þær næstum í duft.
- Taktu stóra skál og blandaðu saman möndlu duftinu, kókóssykrinum, rifnu kókóshnetunni og bökunarduftinu.
- Í aðra skál skaltu setja eggin, kókóshnetuolíuna og vanillubaunamaukið og þeyta saman með handafli.
- Helltu núna eggjablöndunni í skálina með möndlumixinu og hrærðu vel þar til þetta er vel blandað saman.
- Helltu núna blöndunni í múffuformim og passaðu að það séu hindber í hverju formi.
- Bakið í um 20 mínútur eða þar til toppurinn er orðinn gylltur.
Ath: ef þú átt ekki matarvinnsluvél eða blandara þá getur þú notað malað möndlumjöl sem fæst út í búð.
Njótið~