Dökkt súkkulaði…er til eitthvað betra, ég bara spyr?
Ég hef notast nokkuð lengi við súkkulaðiuppskrift bæði heima og á namminámskeiðunum en mig langar oft í dekkra súkkulaði og svo er jú alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Oftast kaupi ég 70-85 % súkkulaði og finnst bara vanta allt súkkulaðibragð af því sem er ljósara.
Hér kemur mjög bragðgóð uppskrift af heimatilbúnu dökku súkkulaði sem ég hvet ykkur til að prófa.
Hráefni:
- 1,5 dl bráðið kakósmjör (bræðið við mjög lágan hita eða í vatnsbaði)
- 1,5 dl kakó
- 0,5-0,75 dl hlynsýróp
- örlítið gott salt
- örlítið vanilluduft
- gúmmilaði ofan á plötuna eftir smekk, á myndunum er ég með goji ber, trönuber, pekan hnetur og brasilíhnetur
Aðferð:
- Blandið öllu vel saman og leyfið blöndunni að kólna aðeins og þykkna.
- Setjið blönduna í sílíkonmót eða hellið yfir bökunarpappír
- Stráið yfir blönduna gúmmilaðinu sem þið viljið nota.
- Stingið í ísskáp í ca. 30 mín eða í frysti í ca. 10 mín.
- Brjótið í litla (eða stóra) bita og setjið í skál og njótið í botn
Það er mjög þægilegt að nota sílíkonmót.
Svo er bara að setja í fallega skál og njóta.
Uppskrift frá heilsumamman.com