Æfingar fyrir þá sem hafa lítinn tíma frá Faglegri Fjarþjálfun
Það er hægt að taka mjög skilvirka og góða æfingu á stuttum tíma en þá þurfa breytur eins og ákefð, æfingaval og þyngdir að vera við hæfi.
Það er hægt að taka mjög skilvirka og góða æfingu á stuttum tíma en þá þurfa breytur eins og ákefð, æfingaval og þyngdir að vera við hæfi.
Ef þú hefur aðeins 20 mín til þess að taka æfingu, þá er gott að einblína á æfingar sem reyna á allan líkamann – virkja sem flesta vöðva og vöðvahópa og keyra hjartsláttinn vel upp.
Hér eru nokkur dæmi um æfingar sem eru mjög skilvirkar ef taka á stutta æfingu og reyna að fá sem mest útúr henni.
Bóndaganga (e. Loaded carry, farmers walk)
Einföld æfing þó þú þurfir að huga vel að líkamsstöðunni við framkvæmd æfingarinnar. Haltu á einhverju þungu, alveg þangað til að það er farið að svíða og haltu þá á því aðeins lengur. Frábær æfing sem virkjar nánast allan líkamann og þar af leiðandi góð til þess að byggja upp styrk og brenna fitu. . . LESA MEIRA