Fara í efni

Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna 10. september 2016 - Kyrrðarstundir

Kyrrðarstundir með hugvekju, reynslu aðstandenda og tónlist verða haldnar í Dómkirkjunni í Reykjavík, Akureyrarkirkju, Egilsstaðakirkju og Keflavíkurkirkju í tilefni dagsins laugardaginn 10. september kl. 20.00.

Tilgangurinn er að koma saman, eiga rólega stund og heiðra minningu þeirra sem látist hafa af völdum sjálfsvíga.

Dagskrá kyrrðarstundarinnar í Dómkirkjunni verður á þessa leið:

  • Sigríður Esther Birgisdóttir aðstandandi segir frá reynslu sinni.
  • sr. Sigfús Kristjánsson flytur hugvekju.
  • Tónlist
    • Ellen Kristjánsdóttir tónlistarkona
    • Björn Steinar Sólbergsson organisti

Í lok stundarinnar verður kveikt á kertum til að minnast ástvina sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Að dagskránni standa, Embætti Landlæknis, Geðhjálp, Hugarafl, Ný dögun, Landspítalinn, Minningarsjóður Orra Ómarssonar, Lifa, Rauði krossinn á Íslandi og Þjóðkirkjan.

Fyrir hönd undirbúningshópsins
Salbjörg Bjarnadóttir
verkefnisstjóri