Fara í efni

Hlaupum við ekki á sömu veggina aftur og aftur - hugleiðing dagsins

Ljósmynd: Sveinn Jónasson
Ljósmynd: Sveinn Jónasson

Að láta af kækjunum

Hlaupum við ekki á sömu veggina, aftur og aftur?

Að minnsta kosti er það reynsla mín eftir að hafa unnið með fólki af öllum stærðum og gerðum, á öllum aldri og báðum kynjum – við hlaupum á veggi sem við vitum að eru fyrir framan okkur, við hlaupum á þá nokkurn veginn á nákvæmlega sama hátt og síðast; við búumst við nýrri niðurstöðu í þetta skiptið og verðum fyrir vonbrigðum þegar veggurinn er ennþá á sínum stað.

Í sumum fræðum er þetta skilgreiningin á geðveiki – að gera sama hlutinn aftur og aftur en búast við nýjum niðurstöðum.

Og alltaf verður það sárara eftir því sem árin líða; alltaf verður svöðusárið á enninu aumara og aumara og sífellt hljómar hærra og hærra röddin innra með okkur sem öskrar:„Af hverju geturðu ekki vitað betur? Af hverju lærirðu ekki af reynslunni!?“

Svarið er einfalt: Þú lærir ekki af reynslunni af því að þú vilt það ekki. Eða, orðum þetta örlítið nákvæmar: Skortdýrið sem stýrir hegðun þinni vill það ekki. Bara alls ekki. Lífið stjórnast af höfðinu og hugsuninni en ekki hjartanu – hjartað veit alltaf betur, en forræði hugans er algert þangað til þú opnar fyrir ljósið í hjartanu.