Orðin innra með okkur - Guðni með hugleiðingu á laugardegi
Þú velur eða skortdýrið velur.
Þetta lögmál gildir um alla tegund næringar, matinn sem við borðum, vökvann sem við drekkum, andrúmsloftið sem við öndum að okkur, orðin sem við lesum, orðin sem við heyrum frá vinum og vandamönnum, orðin sem við heyrum innra með okkur.
Ekki síst orðin innra með okkur – þau enduróma á háum styrk, vel og lengi, til hverrar frumu líkamans.
Um alla þessa næringu gildir sama lögmálið – þegar við sjáum til þess að hún sé jákvæð þá stýrum við eigin líðan. En þegar við höfum ekki fyrir því að stýra næringunni mun næringin stýra líðan okkar og hegðun gagnvart öðrum manneskjum og heiminum.
Kostirnir eru tveir.
Annaðhvort stýrir líðanin næringu okkar til vansældar – líðanin velur og styrkir víta- hringinn.
Eða þá að næringin stýrir líðan okkar til velsældar – við veljum og styrkjum okkur sjálf.