Fara í efni

Þakklæti er uppljómun - Hugleiðing á föstudegi frá Guðna

Þakklæti er uppljómun - Hugleiðing á föstudegi frá Guðna

Þakklæti er uppljómun

Þakklæti er uppljómun. Þegar ég er sannarlega þakklátur upplifi ég sterka tilfinningu velsældar og allsnægta. Þá finn ég fyrir mér. Þá finn ég fyrir okkur í sál minni, finn fyrir öllum og öllu sem er, finn fyrir guði.

Ég er ekki að tala um að hugsa um þakklæti eða segjast vera þakklátur heldur að finna fyrir og upplifa þakklæti.

Þegar það gerist er ég í núinu, í augnablikinu og upplifi sannarlega velsæld og finn mjög sterkt fyrir tíðni hjartans. Þegar ég finn fyrir þakklæti þá finn ég ekki fyrir neinu öðru – engum skorti, þunglyndi eða sjálfsvorkunn.

Þakklætið tekur allt rýmið – ég er tendraður af þakk- læti; upplýstur af ljósi: ást.