Þegar þú rekur augun í fáein grá hár
Hvernig má það vera að 40 sé hið nýja 30 og að 50 sé hið nýja 40? Eru strærðfræðingar orðnir eitthvað ruglaðir eða ert þú kannski alveg snar galinn? 60 er hið nýja … gleymum þessu.
Ef þú tekur sjálfa þig ekki mjög alvarlega ættirðu að líta í spegilinn og hlægja smávegis vegna þess að það má lifa lengi á góðu skopskyni segja þau, Leslie Zinberg og Kay Ziplow í pistli á Huffington Post.
Við viljum helst telja sjálfum okkur trú um að aldur sé ekkert annað en einhver tala en fjölmiðlar og samfélagsmiðlar skapa í raun þá ímynd að það sé ómögulegt að sætta sig við aldur sinn eða að það sé fallegt eldast. Daglega erum við minnt á að fólk 50 ára og eldra sé eins og týndur þjóðflokkur. Í sannleika sagt er þetta oft niðurdrepandi. Hversu oft sérðu 60,70, eða 80 ára konu á forsíðum blaðanna? Þau skipti má telja á fingrum annarar handar.
Þegar við tökum okkur tíma til þess að njóta þessarar ferðar sem ævi okkar er förum við brjóta heilann um hvaðan þessi litlu gráu hár koma? Hefurðu hugmynd um það? Hvar voru þau áður? Það dugar að segja að við höfum aldrei boðið þeim að taka þátt í lífi okkar, þekkirðu kannski einhvern sem hefur boðið þau velkomin? „Láttu þig hverfa“ eru skilaboð okkar til okkar sjálfra og að þeim orðum sögðum grípum við plokkarann eða hlaupum á hárgreiðslustofuna.
Að öllu gamni slepptu hefur aldur ekkert með að gera hverju við getum áorkað, tileinkað okkur eða lært. Við erum stolt af því hvar við erum og hvað við erum gömul. Að eldast er tækifæri en ekki lokaðar dyr. Við ættum að njóta unaðar, áskorana og daglegra tækifæra til þess . . . LESA MEIRA