Fara í efni

Þú ert úti að aka - hugleiðing dagsins frá Guðna

Ljósmynd: Eran Yerushalmi
Ljósmynd: Eran Yerushalmi

Þú ert úti að aka.

Aðstæður hafa verið góðar, en veðrið breytist um það leyti sem þú beygir af aðalveginum og það byrjar að rigna og dimma. Þú kveikir á háu ljósunum og heldur mátulega þétt um stýrið, beinir allri athygli að aðstæðunum og því verkefni sem fyrir þér liggur.Þú dæmir ekki myrkrið.

Þú dæmir ekki regnið. Þú dæmir ekki veginn. Þú tekur fullt tillit til aðstæðna og leggur þig fram um að leiða hjá þér allt áreiti, t.d. frá börnunum í aftursætinu.

Í stuttu máli ferðu ekki í viðnám gegn því sem þú hefur ekki stjórn á. Í stað þess að vera fjar- verandi kemurðu til fulls inn í augnablikið – og þannig geturðu verið í ástandi vitnis sem tekur einfaldlega eftir öllu sem gengur á, án þess að leggja á það dóm.Þú skilur að hvert augnablik á veginum er tækifæri til að halda beint áfram eða aka út af veginum.