Þær innihalda fáar kaloríur.
Afar gott snakk fyrir alla fjölskylduna.
2 eggaldin
2 bollar af möndluhveiti
1 tsk af cayenne pipar
Salt og pipar
2 egg
2 msk af kókósolíu – fljótandi
Forhitið ofninn í 200 gráður
Takið allt hýði af eggaldin og skerið það svo niður í lengjur eins og franskar. Setjið til hliðar.
Takið skál og hrærið saman möndluhveiti, cayenne pipar, salti og svörtum pipar.
Setjið egg í aðra skál og þeytið þau vel saman.
Dýfið nú eggaldins lengjunum í eggin, svo í hveitiblönduna og aftur ofan í eggin og svo aftur í hveitiblönduna.
Leggið lengurnar þegar þær eru tilbúnar á plötu með smjörpappír og hellið létt yfir allt saman með kókósolíunni.
Bakið í 15 mínútur eða þar til lengjur eru stökkar og létt brúnar.
Berið fram heitar. Tilvalið meðlæti eða á hlaðborðið.
Ábending: Þessar lengjur frystast vel ef þú hefur í huga að margfalda uppskriftina. Setjið bara nokkrar saman í zip lock poka áður en þú veltir þeim upp úr hráefninu.
HÉR er svo uppskrift af dásamlega hollri og góðri ídýfu.
Uppskrift frá dietdoctor.com