Þessar pönnsur eru fínar til dæmis í morgunmat eða með miðdegiskaffinu. Þær eru bragðgóðar, hollar og próteinríkar.
Þessar pönnsur eru fínar til dæmis í morgunmat eða með miðdegiskaffinu. Alveg upplagt að borða þær með sultu. Hægt er að bæta við sykri eða öðru sætuefni í uppskriftina ef ykkur finnst þær ekki nógu bragðmiklar. Mér finnst það persónulega ekki þurfa. Uppskriftin er miðuð við tvo til þrjá skammta (sirka 8-9 litlar pönnsur). Pönnsurnar eru próteinríkar og innihalda talsvert af E-, B2- og B12-vítamíni.
Magn |
Hráefni |
200 g |
Kotasæla |
2 dl |
Haframjöl |
3 stk |
Egg |
1 tsk |
Vanilludropar |
eftir smekk |
Kanill |
- Setja allt hráefnið í blandara |
- Hita pönnu í ~5 mín með PAM spreyi eða olíu |
- Setja sirka 2 msk í einu á pönnuna |
- Snúa við hverri pönnsu þegar smá kúlur myndast
|
Hrund Valgeirsdóttir, næringarfræðingur MSc, Næring.com