SÚKKULAÐI SMOOTHIE – UPPSKRIFT FRÁ GLÓKORN.IS
Hann Sölvi Avó hjá Glókorn.is á heiðurinn af þessari uppskrift.
Fjölbreytni í smoothie gerð er lykillinn að því að maður fái ekki leið á hollustunni og gefist upp.
Ég elska súkkulaðibragð og reyni því oft að ná því fram í uppskriftunum mínum. Þessi smoothie er fyllandi og næringarríkur en kakóduftið inniheldur meðal annars magnesíum, möndlumjólkin góða fitu, kalk og prótein, hörfræolían er rík af omega-3 fitusýrum og ávextirnir innihalda hin ýmsu vítamín og orku.
Súkkulaði Smoothie
UM HÖFUND
Sölvi Avo Pétursson útskrifaðist með BSc í Næringarfræði frá Háskóla Íslands árið 2012. Hann er einnig menntaður hláturjóga leiðbeinandi og er því eins skonar Næringarþerapisti með meistaragráðu í leikgleði. Avo skynjar mikilvægi þess að dreifa heilsuboðskapnum og hefur sótt fjölda námskeiða með helstu heilsufræðingum landsins og víðar. Hann trúir á mátt hráfæðis sem hann hefur unnið við að skapa í Noregi, Kaliforníu og nú á Gló í Fákafeni, þar sem hann sér um Tonic Barinn.